Ræða á fundi í Garðabæ að kvöldi 12. mars
13.3.2009 | 11:59
Endurreisnin í samfélaginu byrjar ekki á því að breyta um vinnubrögð heldur viðhorf. Máltækið segir að orð séu til alls fyrst en á undan orðunum kemur engu að síður, - eða ætti að minnsta kosti að koma hugsun og um leið viðhorf. Eitt af mörgum þörfum verkefnum við endurreisnina framundan er að breyta viðhorfi okkar til ýmissa þátta í samfélaginu, viðhorfum okkar til auðs og valds, til samkenndar og samstöðu, viðhorfum til velferðarsamfélagsins, til gegnsæis í ákvarðanatökum og upplýsingamiðlunar.
Við erum öll sammála um að brýnustu verkefni okkar nú sé að koma bankakerfinu á fætur, atvinnulífinu í gang og heimilunum til bjargar. Við erum líka sammála um að stór mál á borð við alþjóðasamskipti, gjaldmiðil og nýtingu náttúruauðlinda þarfnist tafarlausrar umræðu og skjótrar en vandaðrar ákvarðanatöku. Og þjóðin öll er áreiðanlega sammála um nauðsyn þess að Íslendingar endurheimti traust sitt á alþjóðavettvangi og til þess að það gerist þurfum við að lyfta Grettistaki.
En fyrst þurfum við að treysta innviðina. Við þurfum að efla okkar eigin sjálfsmynd og traust fólksins í landinu á kjörnum fulltrúum sínum á þingi, stjórnvöldum og embættismönnum. Viðhorfskannanir sýna að Alþingi vermir eitt af botnsætunum í trausti fólks á opinberum stofnunum. Á meðan sú er staðreyndin er erfitt að ætlast til þess að við endurheimtum traust og virðingu alþjóðasamfélagsins. Uppreisn æru á þeim vettvangi er nauðsynleg forsenda þess að atvinnulíf fái þrifist með eðlilegum hætti og að við getum á nýjan leik staðið hnarreist sem þjóð meðal þjóða.
Ég hef leyft mér að halda uppi gagnrýni á störf Alþingis frá því ég tók þar sæti og ég er sannfærð um að breytt vinnulag á þinginu getur skipt miklu máli fyrir almenning í landinu. Það er óþolandi fyrir bæði þingmenn og kjósendur þeirra að þingið sé sett í hlutverk afgreiðslustofnunar og samþykki jafnvel flóknustu mál á augabragði af því að ráðherrum ríkisstjórnar á hverjum tíma, liggur á að koma málum í gegn. Hlutverk löggjafarvaldsins sem fer með umboð þjóðarinnar til ákvarðanatöku er miklu stærra og þýðingarmeira en svo að þessi þróun verði ekki stöðvuð.
Ég hef í störfum mínum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, bæði í sveitarstjórn og á þingi, kappkostað að vera í senn góður liðsmaður og gagnrýninn. Ég hef líka í senn reynt að tjá mig af yfirvegun en jafnframt tæpitungulaust og ég vona að við séum sammála um að þörf sé fyrir opnari umræðu og skoðanaskipti en verið hefur og það teljist frekar til dyggða en lasta að segja hug sinn með skýrum hætti
Við þurfum að breyta vinnulagi og viðhorfi og góð byrjun er að breyta vinnulagi innan stjórnmálaflokkanna sjálfra. Þar getur Sjálfstæðisflokkurinn tekið þýðingarmikla forystu og ég er reiðubúin til að leggja allt mitt af mörkum í þeim efnum.
Kæru sjálfstæðismenn
Ég óska eftir stuðningi ykkar í 3ja sæti í þessu prófkjöri okkar og grundvalla framboð mitt á þeirri einlægu sannfæringu minni að það sé ekki bara pláss heldur þörf fyrir fólk sem kemur til dyranna eins og það er klætt og nálgast verkefni sín af heiðarleika.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Facebook
Athugasemdir
Yfirburða frambjóðandi og sem betur fer á þjóðin & Sjálfstæðisflokkurinn flutt af flottum kvenframbjóðendum. Nú er bara að veita þeim brautargengi í kosningum hjá Sjálfstæðisflokknum, af 10 kjósendum í Reykjavík, merkti ég við 7 konur, ég vil "virkja hæfasta fólkið", hvort sem um er að ræða "typi eða píku". Svandís Svavarsdóttir er frábær frambjóðandi fyrir VG og ég vona innilega að öllum flokkum beri "gæfa" til að kasta út þeim einstaklingum sem "sváfu í vinnunni" og setja inn nýja einstaklinga. Það gerði ég alaveganna. ÉG samgleðst Sjálfstæðisflokknum fyrir að eiga svona mikið af "hæfum & duglegum konum...."
kv. Heilbrigð skynsemi
Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 18:05
Væri Sjálfstæðisflokkur minn "tebolli" styddi ég þig. ..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 14.3.2009 kl. 11:51
Góð ræða.
Það þarf að aðskilja framkvæmda- og löggjafavald.
Þórður Björn Sigurðsson, 15.3.2009 kl. 10:09