Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir er fædd á Akranesi 23. júní 1949. Gift Daða Runólfssyni. Börnin eru tvö: Ríkharður sem er í sambúð með Þóreyju Vilhjálmsdóttur og eiga þau tvö börn Ragnheiði og Vilhjálm. Hekla Ingunn, hennar sonur er Andri Már. Kjörin á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðvesturkjördæmi í kosningunum 12. maí 2007 og lét þá af störfum sem bæjarfulltrúi og bæjarstjóri í Mosfellsbæ.Situr í eftirtöldum fastanefndum Alþingis: forsætisnefnd, 6 varaforseti 2007 2009, 3. varaforseti 2009, menntamálanefnd , heilbrigðisnefnd, félags og tryggingarnefnd.Íslandsdeild Norðurlandaráðs, menningarmálanefnd Norðurlandaráðs, fulltrúi í eftirlitsnefnd Norræna fjárfestingabankans. Oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar og bæjarstjóri frá 2002 2007. Sat í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, stjórn SSH, stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, stjórn Brunamálaskólans og einnig í nokkrum nefndum sem fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ragnheiður er BA í íslensku, kennsluréttindi á grunn og framhaldsskólastigi og með framhaldsnám í menntunarfræðum með áherslu á stjórnun. Kennari og skólastjóri frá 1981 2000 í Mosfellsbæ og skólastjóri í Hjallaskóla í Kópavogi 2001- 2002 Formaður Æskulýðsráðs ríkisins og Æskulýðssjóðs, félagi í Oddfellowreglunni og Soroptimistaklúbbi Mosfellsbæjar Skilaboð frambjóðanda til kjósenda:Ég býð fram krafta mína og áræðni til að starfa fyrir þjóðina í því endurreisnar starfi sem framundan er í íslensku samfélagi og tel afar mikilvægt að byggja þá endurreisn á grunngildum Sjálfstæðisflokksins, fylgja mannúðlegri markaðshyggju samhliða öflugu fjölskyldu-, velferðar - og menntakerfi.